Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Farið á Þjóðhátíð 15 ár í röð og samdi lagið í brekkunni :: Lagið beint inn á topp 20 á Spotify
Myndin sem fylgir útgáfunni á Spotify er tekin í Hvítu tjöldunum á Þjóðhátíð 2011 en á myndinni með Patrik er engin annar en Viktor Örn Guðmundsson FH goðsögn og hægri bakvörður úr gullkynslóð FH-inga.

Á miðvikudaginn kom út nýtt lag með Patrek „PBT“ Atlasyni söngvara. Í laginu kveður heldur betur við nýjan tón en lagið er opinbert Þjóðhátíðarlag, samið og sungið á kassagítar sem ekki hefur verið mest notaða hljóðfærið í hans lögum til þessa. Lagið samdi hann með Arnari Dór Arnarssyni, Anya Shaddock og Hákoni Guðna Hjartarsyni sem líka spilar á laginu og stjórnaði upptökum. Þjóðin var spennt fyrir laginu því það þaut beint inn á topp tuttugu á Spotify eftir einn dag í spilun.

Farið á 15 Þjóðhátíðir í röð

„Ég er búinn að fara á Þjóðhátíð í 15 ára röð og ég elska Þjóðhátíð. Ég hef farið á Wireless hátíðina og villtustu partíin á Ibiza en það kemst ekki nálægt Þjóðhátíð,“ sagði Patrik í viðtali í vikunni í tilefni af útkomu lagsins. „Þess vegna langaði mig að henda í lag með þrem, fjórum gripum og sannleikanum að vopni um þessa frábæru hátíð,“ segir hann.

Rangur maður í brekkunni

Lagið er ljúfsár lýsing á ungum manni í algleymi hátíðarinnar og einhverjir hafa nefnt að stemmningin í textanum sé ekki ósvipuð þeim í textanum að sumarslagaranum „Rangur maður” með Sólstrandargæjunum. Lagið er að hluta til byggt á sannsögulegum atburðum frá hátíðinni í fyrra þegar Patrik datt í það með Þjóðhátíðargestunum eftir að hann kom fram á hátíðinni.

Komið fram á Þjóðhátíð síðan 2023

„Ég hef verið að koma fram á Þjóðhátíð alveg frá því að „Skína” kom út árið 2023. Það hefur verið alveg geggjað og einn af hápunktum hvers árs hjá mér. Í fyrra eftir giggið ákvað ég svo bara að taka Þjóðhátíðarpakkann alla leið og skvetti bara í mig bjór og setti partýið allt í botn,” segir Patrik. Kannski væri það heldur ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Patrik er yfirlýstur bindindismaður til nokkurra ára.

Kassagítar slagari og ólíkt því sem Patti hefur verið að gera

„Ég hló svolítið að mér og hef svolítið verið að leika mér með þetta concept síðan í fyrra og í vor var mér boðið að taka þátt í lagahöfundavinnustofu og þar small textinn. Að einhverju leyti er þetta byggt á þessu kvöldi svo er sett vel í þetta svo maður maxi upplifunina,” segir Patrik um textann. Lagið er svo keyrt áfram á kassagítar og er í raun allt annar tónn en það sem ég hef verið að gera,” bætir hann við.

 

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Alfreð Týr
Sólarlag hljómar í Eldheimum á Goslokum
Lokasprettur í forsölu Þjóðhátíðarmiða fyrir félagsmenn
Helgarskákmót og afmælisblað í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.