Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Svipmyndir af öðrum degi Goslokahátíðar. Ljósmyndari Eyjafrétta heimsótti þrettán viðburði og tók 100 myndir auk nokkurra myndbanda sem endurspegla fjölbreytt mannlíf og góða stemningu. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Blíðskaparveður og fjölbreytt dagskrá settu svip sinn á annan dag Goslokahátíðar í Vestmannaeyjum í gær. Um allan bæ var líf og fjör þar sem heimamenn og gestir nutu listasýninga, tónlistar, markaða og annarra viðburða sem boðið var upp á frá morgni og fram á kvöld.

Ljósmyndari Eyjafrétta heimsótti þrettán viðburði víðs vegar um Vestmannaeyjar yfir daginn. Afraksturinn er vegleg myndasyrpa með 100 myndum auk nokkurra myndbanda sem fanga mannlífið, listina, tónlistina og þá einstöku stemningu sem ríkti á öðrum degi Goslokahátíðar. Meðal annars var komið við í Gallerý 24 þar sem Merkikerti var með sölusýningu, á sýningunni Draumur í DOSE Prýði, á Rakarastofunni, í jóga á Stakkó undir stjórn Láru Skærings, á sýningu í húsi Taflfélags Vestmannaeyja og á útilistasýningunni á Stakkó.

Einnig heimsótti hann Hvíta húsið, Gallerý Skúrinn og Miðbæjarfjörið á Bárugötu þar sem Kiddi Bigfoot sá um tónlistina og skapaði líflega stemningu. Síðdegis voru opnaðar nýjar sýningar, meðal annars sýning Hrafnhildar Kristinsdóttur í Sagnheimum og sýning Árna Vilhjálmssonar, Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir. Þá opnaði Jóna Kristjánsdóttir myndlistasýningu sína í Gelp-krónni.

Tónlistin fékk svo að njóta sín um kvöldið þegar Guðrún Erlingsdóttir hélt útgáfutónleika í Eldheimum. Hátíðardeginum lauk síðan með tónleikum Mannakorns í Höllinni þar sem um 500 gestir mættu og skemmtu sér fram á kvöld. Meðfylgjandi myndasyrpa gefur innsýn í fjölbreytt mannlíf og góða stemningu sem ríkti víðs vegar um Vestmannaeyjar á föstudegi Goslokahátíðar.

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.