Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Guðjón Ólafsson ræðir við föður sinn, Ólaf R. Sigurðsson frá Stapa, um sögu Vatnsdals, lífið í dalnum og fjölskyldusýninguna í Svölukoti á Goslokahátíð.
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Ein af notalegri stundum Goslokahátíðar í ár átti sér stað í Svölukoti. Þar tóku Ólafur R. Sigurðsson á Stapa og afkomendur hans á móti gestum og leiddu þá um fjölskyldusýningu sem sett var upp í tilefni hátíðarinnar.

Í myndbandinu rifjar Óli upp sögu Vatnsdals af sinni alkunnu frásagnargáfu, segir frá fólkinu, staðnum og listaverkunum sem prýða sýninguna. Þar eru eingöngu verk eftir fjölskyldumeðlimi frá Stapa; olíumálverk eftir Ólaf, vatnslitamyndir eftir Guðjón Ólafsson, akrílverk eftir Hafdísi Ösp Garðarsdóttur og olíumálverk og stafræna myndlist eftir Svanhvíti Birnu Samúelsdóttur.

Myndbandið fangar ekki aðeins söguna og listina heldur einnig hlýlegt augnablik þegar Guðjón sonur Óla gengur með föður sínum um sýninguna og spjallar við hann. Sú stund gefur myndbandinu sérstakan blæ og minnir á að sagan, listin og tengslin við Vatnsdal lifa áfram á milli kynslóða.

25 mínútna ferðalag um sögu, list og minningar frá Vatnsdal – vel þess virði að gefa sér tíma til að njóta.

Play Video

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.