Vestmannaeyjar skarta sínu allra fegursta í dag, sunnudaginn 9. ágúst, og óhætt að segja að dagurinn sé einn sá besti í sumar. Sól hefur skinið, vindur hægur og hitinn notalegur. Þegar allt þetta fer saman gerast sumardagar í Eyjum vart miklu betri.
Eyjamenn kunna vel að meta daga sem þessa. Þegar vindurinn tekur sér frí, sólin fær að njóta sín og útsýnið yfir bæinn, Heimaklett og eyjarnar í kring opnast í allri sinni dýrð er fátt sem jafnast á við Vestmannaeyjar.
Eftir misjafnt sumarveður er blíðan kærkomin og margir hafa nýtt daginn til útiveru, gönguferða og þess einfaldlega að njóta veðurblíðunnar.
Hvort 9. ágúst verður skráður besti veðurdagur sumarsins skal ósagt látið. Hann á þó örugglega eftir að verða í hópi þeirra bestu.
Svona dagar minna okkur á hvers vegna við búum í Eyjum.