Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Myllan í Herjólfsdal. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Til stendur að flytja Mylluna úr Dalnum á allra næstu dögum, jafnvel strax í dag. Þetta segir í tilkynningu frá Myllumönnum. 

Þar segir jafnframt að þar sem flutningur Myllunnar úr Dalnum valdi almennt kvíða og þunglyndi meðal Eyjamanna var tekin sú ákvörðun að flytja hana ekki fyrr en að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Talið var að Eyjamenn hefðu nóg annað að hugsa um, þótt áhyggjur af Myllunni bættust ekki við.

En nú er sem sagt komið að flutningnum og verður fjölmiðlum gert viðvart um nákvæma tímasetningu. Myllan verður síðan áfram til sýnis í portinu við enda Skvísusunds í allan vetur.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.