Samband íslenskra lúðrasveita hefur um áraraðir staðið fyrir landsmótum lúðrasveita. Að þessu sinni verður mótið haldið í Vestmannaeyjum dagana 18.–20. september næstkomandi.
Á landsmótinu koma hljóðfæraleikarar saman, æfa nokkur lög og halda síðan tónleika þar sem gestum gefst kostur á að njóta fjölbreyttrar lúðrasveitatónlistar.
Þema mótsins að þessu sinni er Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Á tónleikunum verða eingöngu flutt þjóðhátíðarlög eða lög sem tengjast hátíðinni með sterkum hætti. Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur leikið á öllum Þjóðhátíðum frá stofnun sveitarinnar árið 1939 og hefur enginn listamaður komið fram á fleiri hátíðum.
Lög Oddgeirs Kristjánssonar skipa að sjálfsögðu stóran sess á efnisskránni. Meðal annars verður flutt syrpa af lögum hans í útsetningu Ellerts Karlssonar, sem var nemandi Oddgeirs og síðar stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
Einnig hafa verið útsettar sérstaklega fyrir þetta tilefni tvær syrpur með „nýrri“ þjóðhátíðarlögum. Eiríkur Rafn Stefánsson og Einar Jónsson hafa annast útsetningarnar af sinni alkunnu snilld.
Tónleikarnir verða haldnir laugardaginn 19. september klukkan 16.00 í Hvítasunnukirkjunni. Aðgangur er ókeypis, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.