Handknattleiksdeild ÍBV tilkynnti í dag að Benóný Þór Benónýsson, oftast kallaður Binni Þór, hafi skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. Samningurinn gildir til tveggja ára.
,,Binni Þór er ungur og efnilegur hornamaður sem hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hann byrjaði að æfa handbolta 15 ára gamall og er einstaklega mikill liðsmaður. Binni Þór var í bikarmeistaraliði 3. flokks ÍBV á síðasta tímabili”, segir í tilkynningu ÍBV.
Þar segir einnig: ,,Við hlökkum til að starfa með Binna Þór áfram og fylgjast með honum taka næsta skref á sínum ferli.“