Eyjafréttir ræddu við nokkra nemendur í 1. bekk um fyrstu skóladagana, það sem þeim finnst skemmtilegast í skólanum, hvað þá langar að læra og framtíðardrauma þeirra.
Nafn: Hákon Hlynsson.
Fjölskylda: Pabbi minn heitir Hlynur og mamma mín heitir Fanndís, svo á ég systir sem heitir Agnes.
Hvað finnst þér skemmtilegast við að vera byrjaður í skólanum? Umm, fara í sund.
Hvernig var fyrsti skóladagurinn? Gaman.
Hvað langar þig að læra í skólanum? Sund.
Hvað finnst þér best að hafa í nesti? Brauð og skyr með engu ofan í og svo bara að fá eitthvað meira.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Fótboltamaður.
Hver er besti vinur/vinkona? Elvar er besti vinur minn.