Eyjafréttir ræddu við nokkra nemendur í 1. bekk um fyrstu skóladagana, það sem þeim finnst skemmtilegast í skólanum, hvað þá langar að læra og framtíðardrauma þeirra.
Nafn: Martin Friðriksson.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Drífa, pabbi minn Friðrik og systkini mín heita Óliver, Monica og Matteó.
Hvað finnst þér skemmtilegast við að vera byrjaður í skólanum? Frístund.
Hvernig var fyrsti skóladagurinn? Bara skemmtilegur, við vorum að leika út um allt.
Hvað langar þig að læra í skólanum? Lesa.
Hvað finnst þér best að hafa í nesti? Svona einhvern kúlumat og skvísur og fiskakex eins og ég var með.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Löggumaður.
Hver er besti vinur/vinkona? Elvar.