Tvö karlalið ÍBV í eldlínunni í dag
Karlalið ÍBV í knattspyrnu og handbolta leika bæði á útivelli í dag. Myndir: Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í knattspyrnu og handbolta leika bæði á útivelli í dag, sunnudag. Knattspyrnuliðið mætir Stjörnunni í Garðabæ klukkan 14.00 og handboltaliðið heimsækir Hauka klukkan 18.00.

Mikilvæg stig í Garðabæ

Fyrri leikur dagsins fer fram á Samsung-vellinum þar sem Stjarnan tekur á móti ÍBV í lokaumferð fyrri hluta Bestu deildar karla.

ÍBV er fyrir lokaumferðina með 17 stig, jafnmörg og KA, og mikilvæg stig í húfi í fallbaráttunni. Stjarnan er jafnframt í harðri baráttu um sæti í efri hluta deildarinnar áður en henni verður skipt í tvo hluta.

Handboltavertíðin hefst gegn Haukum

Klukkan 18.00 hefja handboltastrákarnir keppni í Olísdeildinni þegar þeir mæta Haukum í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum.

Um er að ræða fyrsta deildarleik ÍBV á nýju tímabili. Haukum var spáð deildarmeistaratitlinum í árlegri spá þjálfara og fyrirliða fyrir tímabilið og bíður Eyjamanna því verðugt verkefni strax í fyrstu umferð.

Leikir dagsins:

  • Klukkan 14.00: Stjarnan – ÍBV í Bestu deild karla í knattspyrnu.
  • Klukkan 18.00: Haukar – ÍBV í Olísdeild karla í handbolta.

Báðir leikir fara fram á höfuðborgarsvæðinu

Nýjustu fréttir

Tvö karlalið ÍBV í eldlínunni í dag
Skilaboð til ríkisstjórnar Kristrúnar?
Kristrún framlengir við ÍBV
ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
ÍBV byrjar Olís deildina á sigri
Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.