Herrakvöld handknattleiksdeildar á laugardaginn
Herrakvöldin eru ávallt vel sótt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herrakvöld handknattleiksdeildar ÍBV fer fram næstkomandi laugardag í Oddfellowhúsinu. Ási Guðna stígur á stokk og mega gestir eiga von á skemmtilegu og fjörugu kvöldi í góðum félagsskap. Húsið opnar kl. 19:00.

Miðinn kostar 9.000 krónur og er miðasalan í fullum gangi á Hárstofu Viktors og Birkis. Einnig er hægt að senda tölvupóst á vilmar@ibv.is til að tryggja sér miða.

Kvöldið er tilvalið fyrir vinahópa, vinnustaði og alla peyja sem vilja eiga skemmtilega kvöldstund saman. Pílukeppnin verður að sjálfsögðu á sínum stað og veglegir vinningar í boði.

Það er því um að gera að heyra í félögunum, safna saman hópi og mæta til að skapa alvöru stemningu. Góður matur, drykkir, skemmtun og góður félagsskapur verða í fyrirrúmi og allt lagt upp með að kvöldið verði eftirminnilegt.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.