
„Það sem mér finnst ekki síst merkilegt við Kveikjum neistann er hvernig samfélagið allt í Vestmannaeyjum hefur komið að verkefninu. Íþróttafélögin, skólarnir, bókasafnið og aðrir sem koma að menntun hafa tekið höndum saman. Samfélagið stendur þétt að baki verkefninu og hefur um leið tekið afstöðu til þess hvers konar skólastarf það vill sjá. Þetta er algjörlega til fyrirmyndar,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands eftir að hafa séð sérblað um Kveikjum neistann sem fylgdi síðasta blaði Eyjafrétta.
Magnús hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi og segir margt í nálguninni falla vel að nýrri framtíðarsýn Kennarasambandsins fyrir íslenskt skólastarf til ársins 2036.
Hvað vakti áhuga þinn á Kveikjum neistann? „Ég hef fylgst með verkefninu frá byrjun og er kannski pínulítið hlutdrægur. Drífa Þöll systir mín og bókasafnið hennar voru meðal lykilaðila frá upphafi, svo ég hef lengi fylgst með skólamálum í Eyjum. Það var meira að segja stutt í að ég sækti um starf þar á sínum tíma. En nóg um mig og það,“ segir Magnús léttur í bragði.
„Ég held að mín ágæta vinkona Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segi margt af því sem mér finnst. Þetta verkefni er nákvæmlega á þeim nótum sem ég tel að íslenskt samfélag ætti að skoða á stærri vettvangi.“
Hvað finnst þér merkilegast við þá leið sem farin hefur verið í Eyjum? „Ráðuneytið hefur lyft Kveikjum neistann upp sem einu af verkfærunum í hugmyndabanka menntunar og það er gott. En mér finnst ekki síður mikilvægt hvernig samfélagið allt kom að hugmyndinni, innleiðingunni og nú því að halda verkefninu gangandi.
Þetta varð ekki bara verkefni skólans heldur samfélagsins alls. Með samtalinu hefur samfélagið í raun valið hvað það telur æskilegt í skólastarfi og stendur þétt að baki þeirri stefnu. Það er algjörlega til fyrirmyndar.“
Hvernig tengist þetta nýrri framtíðarsýn Kennarasambandsins? „Við leggjum áherslu á að allir skólar, leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar og tónlistarskólar komi að slíku samtali. Skólasamfélagið móti sameiginlega áherslur og mæli síðan árangurinn út frá þeim mælikvörðum sem það hefur valið.
Vestmannaeyjar hafa sýnt áhugaverða leið sem við getum lært mikið af. Ég vona að Vestmannaeyjabær vilji fá okkur í spjall.“
Hvað myndir þú helst vilja ræða við Eyjamenn? „Okkur langar sem dæmi að heyra hvernig unnið er með gervigreind í skólastarfi, hvernig staðið er að kennslu barna með annað heimamál en íslensku og hvernig samstarfi leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla er háttað. Og auðvitað fá þeirra sýn á fleiri atriði sem við förum yfir í okkar sýn.
Svo er það auðvitað stóra spurningin um hvernig samfélagið sjálft kemur að skólamálum. Þar finnst mér reynsla Eyjamanna sérstaklega áhugaverð.“
Magnús þakkar Eyjafréttum fyrir sérblaðið um fyrstu fimm ár Kveikjum neistann og vill um leið vekja athygli á nýrri framtíðarsýn Kennarasambandsins. „Eyjafréttir eru náttúrulega geggjað blað! Það væri gaman að fá smá umfjöllun um okkar verkefni, Mótum framtíðina saman, í þetta góða blað,“ segir Magnús Þór Jónsson að lokum.
Nánar um framtíðarsýn Kennarasambandsins á motumframtidinasaman.ki.is.
