Óli Jói, eins og hann er gjarnan kallaður, fer um víðan völl með Svövu Kristínu og rifjar upp skemmtilega tíma úr kirkjunni en hann starfaði lengi sem prestur á höfuðborgarsvæðinu áður en hann hélt aftur heim til Vestmannaeyja þegar hann tók óvænt við stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs.
Það hefur svo sannarlega gengið á ýmsu frá því Óli Jói lagði hempuna á hilluna og hóf störf hjá Herjólfi snemma á síðasta ári og kemur hann inn á það þegar met var slegið í síðasta mánuði, þá fór Herjólfur í sína tvöhundruðustu ferð til Þorlákshafnar á þessu ári. Met sem verður vonandi aldrei slegið.
Óli Jói var aðeins 25 ára þegar hann útskrifaðist úr guðfræðinni og segir hann aldurinn lítið hafa hjálpað sér í að líta út sem virðulegur prestur en hann hefur alltaf verið frekar hávær og það breyttist ekki eftir að hann varð prestur. „Ég var þarna beðin um að lækka í hljóðkerfinu, en vandinn var sá að það var ekkert hljóðkerfi” Sögurnar eru margar og húmorinn aldrei langt undan hjá Óla Jóa sem rifjar það einnig upp þegar hann fór í framboð í Seljakirkju. „Það er ekki mjög kristilegt að hampa sjálfum sér svona” sagði Óli Jói um slagorðið sitt, „Hver er bestur – Óli Prestur”
Þáttinn í heild sinni má sjá hér að neðan.
Þú hefur horft á ókeypis kynningu. Gerstu áskrifandi til að horfa á myndbandið í fullri lengd.
Gerast áskrifandi Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn