Umhverfisstofnun biður veiðimenn að hlífa teistunni
Mynd: Umhverfisstofnun

Nú er svartfuglsveiðitíminn í algleymingi og ljóst að margir nýta sér að komast út á sjó þegar dúrar milli lægða. Teista hefur verið friðuð fyrir skotveiðum síðan árið 2017, enda á stofninn undir högg að sækja. Orsakirnar eru m.a. taldar vera afrán minks, en teistum er einnig mjög hætt við að lenda í grásleppunetum.

Við biðlum til skotveiðimanna að passa sig eftir fremsta megni að skjóta ekki teistu í misgripum fyrir aðra bráð. Að vetri er teistan mun ljósari en aðrir svartfuglar og ekki með greinilega litskiptingu eins og t.d. langvía og stuttnefja. Það mætti segja að hún væri flikróttari.

Í meðfylgjandi hlekkjum eru myndir af teistum á mismunandi lífsstigum og árstímum.

https://www.allaboutbirds.org/guide/Black_Guillemot/id

https://www.flickr.com/photos/reynirsk/5068862567

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.