Ein eftirminnilegasta stundin á kótilettukvöldinu í Höllinni var þegar Kótilettubandið flutti lagið Locomotive Breath til heiðurs Jóa Listó, sem borinn var til grafar föstudaginn 9. október síðastliðinn. Lagið er eitt þekktasta verk bresku rokksveitarinnar Jethro Tull og var í miklu uppáhaldi hjá Jóa. Það kom út árið 1971 á plötunni Aqualung og er samið af Ian Anderson.
Þröstur, sonur Jóa og einn liðsmanna Kótilettubandsins, sagði frá því áður en lagið var flutt að tónlist Jethro Tull hefði verið stór hluti af æsku hans. Platan Aqualung hefði gjarnan verið sett á fóninn á heimilinu þegar eitthvað stóð til og tónlist sveitarinnar því tengst mörgum góðum minningum um föður hans.
Þröstur rifjaði jafnframt upp síðustu stundirnar með föður sínum og hrósaði starfsfólkinu sem annaðist Jóa fyrir einstaka umhyggju og frábæra þjónustu undir það síðasta.
Honum er sérstaklega minnisstæð ein af síðustu nóttunum þegar þeir feðgar lágu í sínu hvoru rúminu og hlustuðu saman á tónlist. Þar áttu þeir dýrmæta stund sem Þröstur mun seint gleyma. „Við héldumst í hendur og allt í einu segir pabbi: „Þetta var ógeðslega flott gítarsóló.“ Það var það síðasta sem ég heyrði hann segja,“ sagði Þröstur.
Þessi fallega og einlæga frásögn gaf flutningi Kótilettubandsins á Locomotive Breath sérstaka merkingu. Með laginu heiðruðu félagarnir minningu Jóa Listó, manns sem unni rokktónlist og naut hennar allt til hins síðasta.
Þessu tengt:
Það var glatt á hjalla í Höllinni í Vestmannaeyjum á föstudagskvöldið þegar Kótilettuklúbburinn hélt sitt árlega góðgerðarkvöld. Aldrei hafa fleiri sótt viðburðinn en alls mættu 350 gestir til að njóta gómsætra kótiletta, fjölbreyttrar skemmtunar og góðrar samveru. Kvöldið heppnaðist í alla staði vel og var ekki síður ánægjulegt að láta gott af sér leiða. Að […]