Fiskeldi um 10% af verðmæti útfluttra sjávarafurða
mynd/Kvótinn.is

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 25 milljörðum króna á árinu 2019, sem er 90% aukning frá fyrra ári. Hefur útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei verið meira og rímar þessi þróun vel við spá okkar fyrir árið. Í erlendri mynt var aukningin aðeins minni, eða 75%, þar sem gengi krónunnar veiktist um tæp 8% á milli ára sé tekið mið af ársmeðaltali gengisvísitölunnar. Rúmlega 90% af eldisafurðum eru flutt út og hefur gengi krónunnar þar með veruleg áhrif á afkomu greinarinnar, líkt og annarra útflutningsgreina.
Útflutningsverðmæti eldisafurða var um 10% af verðmæti sjávarafurða á árinu 2019 og hefur þetta hlutfall aldrei verið hærra. Ekki er við öðru að búast en hlutfallið hækki enn frekar á næstu árum samfara aukinni framleiðslu og þar með útflutningi, enda eru þar veruleg tækifæri til verðmætasköpunar. Ítarlegri umfjöllun um þetta má sjá á Radarnum, en þar hafa tölur sem og umfjöllun verið uppfærð.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.