Óskar Pétur Friðriksson myndaði dæluskipið Sebastiano Caboto að störfum í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi. Dýpkunin tengist undirbúningi að styttingu Hörgaeyrargarðs og bættum siglingaaðstæðum í höfninni.
Skipið er á vegum belgíska dýpkunarfyrirtækisins Jan De Nul. Eins og Eyjafréttir greindu frá 5. október var fyrirhugað að Sebastiano Caboto dýpkaði innsiglingarrennuna og að stytting Hörgaeyrargarðs yrði boðin út í framhaldinu.
Gert er ráð fyrir að garðurinn verði styttur um 40 metra og dýpkað austan og vestan við hann. Markmiðið er að breikka siglingaleiðina, auka öryggi skipaumferðar og bæta nýtingu hafnarsvæðisins. Garðurinn og grynningar við hann hafa þrengt að siglingum, meðal annars þegar skip liggja við Nausthamarsbryggju gegnt garðinum.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita framkvæmdaleyfi fyrir styttingu garðsins. Í gögnum málsins er gert ráð fyrir að sá hluti framkvæmdanna hefjist í nóvember.
Samkvæmt fyrri umfjöllun Eyjafrétta hefur Umhverfis- og orkustofnun veitt leyfi til að varpa allt að 120 þúsund rúmmetrum af dýpkunarefni og efni úr garðinum í hafið. Losunarsvæðið er norðan við Eiðið, í garðstæði fyrirhugaðs hafnargarðs. Heimildin nær til heildarframkvæmdarinnar og segir ekki til um hversu mikið efni hefur þegar verið fjarlægt.
