N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Herbert Þorleifsson við nýju hraðhleðslustöð N1 í Vestmannaeyjum. Hann hafði lengi kallað eftir þjónustunni og var fyrsti viðskiptavinurinn til að hlaða. Ljósmyndir/aðsendar.

Ný hraðhleðslustöð N1 í Vestmannaeyjum var tekin í notkun í gær. Tveir bílar geta hlaðið samtímis við stöðina og er hámarkshleðsluaflið 200 kW. Herbert Þorleifsson átti heiðurinn af því að vígja stöðina og vera fyrsti viðskiptavinurinn til að hlaða.

Stöðin er á norðurenda svæðis N1, við bílaþvottaplanið. Að sögn Jóns Viðars Stefánssonar, forstöðumanns einstaklingssviðs N1, voru bílar strax farnir að nýta hana og hefur allt gengið vel. Til að hefja hleðslu þurfa viðskiptavinir að sækja N1 appið.

Mögulegt er að auka afl stöðvarinnar í 400 kW síðar og fjölga hleðslutengjum. Stöðin þjónar bílum með CCS-tengi, sem að sögn Jóns Viðars er sú tengigerð sem stærstur hluti rafbíla hér á landi notar.

Eftirspurnin kallar á þjónustuna

Jón Viðar segir aukna eftirspurn eftir hleðsluþjónustu hafa ráðið uppbyggingunni.

„Markaðurinn er bara að kalla eftir þessu,“ segir hann og bætir við að eftirspurnin aukist um land allt. „N1 er á fullu í orkuskiptum og eru Vestmannaeyjar engin undantekning.“

Uppsetningin hafi gengið frábærlega, þótt samgöngur milli lands og Eyja hafi seinkað henni um nokkra daga.

Verkefnið er alfarið á vegum N1. Jón Viðar segir að ekki séu uppi áform um aðra staðsetningu í Eyjum að svo stöddu, en til greina komi að fjölga tengjum og auka afl á núverandi stað. Verði eftirspurn meiri en framboð muni félagið bregðast við því.

Herbert hafði lengi kallað eftir hleðslustöð

Herbert Þorleifsson var fenginn til að vígja stöðina, enda hefur hann lengi kallað eftir þessari þjónustu.

„Herbert er einn af okkar góðu daglegu gestum hjá N1 og hafði hann kallað eftir þessari þjónustu lengi. Það var því vel við hæfi að hann væri fyrsti viðskiptavinurinn,“ segir Jón Viðar.

Hann bætir léttur við að tap Liverpool í Meistaradeildinni hafi ekkert með valið að gera, þótt honum skiljist að sú saga gangi meðal fastagesta N1 í Eyjum.

Jón Viðar hvetur Eyjamenn til að sækja N1 appið og velja N1 í Vestmannaeyjum sem „Stöðin mín“. Hann segir viðskiptavini þannig fá lægsta mögulega verð hjá félaginu á rafmagni og eldsneyti, ásamt því að safna punktum.

Nýja hraðhleðslustöðin er við bílaþvottaplanið hjá N1 í Eyjum. Þar geta tveir bílar hlaðið samtímis og er hámarksaflið 200 kW.

Nýjustu fréttir

N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.