Miðstöðin bauð viðskiptavinum og velunnurum sínum í kokteilboð í gærkvöldi þar sem samveran og gleðin voru í fyrirrúmi. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, mætti með myndavélina og fangaði fjörið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Það er líka tilefni til að skála hjá Miðstöðinni, sem er á lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Þetta rótgróna fjölskyldufyrirtæki hefur þjónað Eyjamönnum frá árinu 1940.
Við látum myndir Óskars segja söguna af kvöldinu!