Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir boðaða skerðingu á framlögum ríkisins til reksturs Herjólfs ohf. í fjárlagafrumvarpinu. Í sameiginlegri bókun frá fundi bæjarstjórnar 4. nóvember segja bæjarfulltrúarnir að skerðingin feli í sér skilaboð um skertar samgöngur milli lands og Eyja. Allir níu bæjarfulltrúarnir standa að bókuninni.
Bæjarstjórn tekur undir ályktun ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) þar sem framganga ríkisstjórnarinnar gagnvart sveitarfélögum á Suðurlandi er sögð óásættanleg. Í bókuninni segir bæjarstjórn að um helmingur nýrra skatttekna ríkissjóðs komi af Suðurlandi á sama tíma og ríkið dragi úr framlögum til mikilvægra innviða og þjónustu á svæðinu.
Bæjarfulltrúarnir benda jafnframt á að íbúar og atvinnulíf í Vestmannaeyjum beri auknar byrðar vegna hækkunar veiðigjalda og kílómetragjalds á sama tíma og boðað sé að draga úr framlögum til Herjólfs.