Herjólfur siglir milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar í dag, laugardaginn 21. nóvember, og þar til annað verður tilkynnt. Síðari ferð dagsins er flýtt um eina klukkustund. Aðrar ferðir falla niður, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi.
Brottfarir í dag
| Frá Vestmannaeyjum | Frá Þorlákshöfn |
|---|---|
| Kl. 07:00 | Kl. 10:45 |
| Kl. 16:00 (áður kl. 17:00) | Kl. 19:45 (áður kl. 20:45) |
Herjólfur bendir farþegum á að forðast að skilja ökutæki eftir við Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn þar sem siglingar geta færst milli hafna á þessum árstíma. Farþegar sem hyggjast nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað.