Hægagangur hjá ísfisktogurunum
Rétt eins og að undanförnu er hægagangur á útgerð ísfisktogaranna Gullvers NS, Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE vegna kórónuveirufaraldursins. Gullver landaði 105 tonnum af blönduðum afla á Seyðisfirði sl. mánudag og hélt ekki til veiða á ný fyrr en á miðvikudagskvöld. Bæði Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu fullfermi í Vestmannaeyjum sl. mánudag. Bergey hélt strax til veiða á ný og landaði rúmlega 50 tonnum sl. miðvikudag en Vestmannaey hélt kyrru fyrir í landi. Gert er ráð fyrir að bæði skipin haldi síðan til veiða annað kvöld.
Arnar Richardsson rekstrarstjóri Bergs-Hugins, sem gerir út Vestmannaey og Bergey, segist vonast til þess að nú fari að lifna yfir fisksölu erlendis og þá verði hægt að sækja meira og nýta skipin með eðlilegum hætti.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.