Aflinn nam alls 104.567 tonnum í nóvember 2006 samanborið við 98.478 tonn í nóvember í fyrra. Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2006 nemur rúmum 1.250.000 tonnum og er það rúmlega 345.000 tonna minni afli en á sama tímabili árið 2005, samkvæmt frétt frá Hagstofu Íslands.
Botnfiskafli dróst saman um tæp 9.900 tonn frá nóvembermánuði 2005 og nam rúmlega 35.000 tonnum. �?orskafli dróst saman um tæp 4.700 tonn, ýsuaflinn um rúm 2.100 tonn og ufsaaflinn um tæplega 2.500 tonn.
Flatfiskaflinn dróst lítillega saman og var tæp 1.500 tonn. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 68.000 tonnum og var nær allur síldarafli. Aukning uppsjávarafla nemur rúmum 16.000 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var 58 tonn samanborið við 530 tonna afla í nóvember 2005.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að samsetning aflans sé sú sama og hún var á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að verð á einstökum fisktegundum er misjafnt.
www.mbl.is greindi frá




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.