Landaður afli í maí var tæplega 126 þúsund tonn

Afli íslenskra fiskiskipa var 125,6 þúsund tonn í maí 2020 sem er 3% meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vegf hagstofunnar, 12% samdráttur varð á veiðum á botnfiski, utan þorskafla sem jókst um 1% og var hann tæplega 26,7 þúsund tonn. Af uppsjávarfiski veiddust tæp 80 þúsund tonn sem er 14% meira en í maí 2019, en meginuppistaða uppsjávaraflans var kolmunni. Strandveiðitímabilið hófst í maí og var afli strandveiðibáta mjög álíka og á fyrri árum þar sem um 94% af aflanum er þorskur veiddur á handfæri.

Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá júní 2019 til maí 2020 var 969 þúsund tonn sem er 12% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.

Afli í maí, metinn á föstu verðlagi, var 8,9% minni en í maí 2019.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.