FriFraVoce með tónleika í Landakirkju

Þýski æskukórinn FriFraVoce heldur tónleika í Landakirkju mánudaginn 20. júlí kl. 17:00 og er aðgangur að tónleikunum frír.

Kórinn var stofnaður fyrir ellefu árum og óx upp úr barnakórnum við klausturkirkjuna í Offenbach í Rheinland Pfalz. Kórinn skipa 30 ungmenni á aldrinum 15-25 ára og starfar á vegum prófastdæmisins í Obere Nahe og stjórnandi hans, Roland Lissmann gegnir einnig stöðu sem yfirkantor prófastdæmisins.Kórinn FriFraVoce heldur tónleika og syngur við messur, m.a. við útvarpsmessur og við ýmis kirkjuleg tækifæri.

Kórinn hefur ferðast talsvert, m.a. til Bandaríkjanna þar sem hann í samstarfi við framhaldsskólakór í New York tók þátt í hátíðartónleikum í tilefni af 500 ára afmæli siðbótar Marteins Lúter í Carnegie Hall sem er  einn virtasti tónleikasalur heims.
Kórinn FriFraVoce syngur fjölbreytta tónlist, gospel, pop, þýsk þjóðlög og dægurlög og hefur m.a. sungið útsetningar af lögum rokksveitarinnar Rammstein.

Kórinn lofar góðri skemmtun.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.