Róleg nótt hjá lögreglunni
Brenna á Fjósakletti 2020 fyrir tómum Herjólfsdal

Rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og engin alvarleg mál komu upp. Kveikt var í brennu á Fjósakletti kl. 23:00 í gærkveldi. Töluverður fjöldi áhorfanda var að fylgjast með þegar kveikt var í brennunni. Búið var að loka fyrir aðkomu að Herjólfsdal og var gæsla á vegum brennuleyfishafa og lögreglu. Fólk safnaðist saman við Hamarsveg og á golfvellinum til að horfa á brennuna og flugeldasýninguna.

Þrjú fíknefnamál komu upp frá því í gær og í nótt. Öll málin voru svokölluð neyslumál. Efnið sem haldlagt var er kannabis.
Tvisvar þurfti lögreglan að hafa tal af fólki þar sem kvartað var yfir hávaða þar sem gleðskapur var í heimahúsi og truflaði þar nágranna sína.

Að öðru leyti var nóttin tíðindalaus hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.