Ekkert nýtt smit í Eyjum

Engin ný smit hafa greinst í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og er staðan því enn óbreytt. Fjórir einstaklingar eru í einangrun og 78 í sóttkví. Niðurstöður skimunar á vegum Íslenskrar erfðagreiningar liggja fyrir og reyndust öll sýni sem tekin voru neikvæð.

Aðgerðastjórn vil þakka starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum fyrir skjót viðbrögð og vel unnin störf við skipulagðar skimanir en samtals hafa um 600 sýni verið tekin. Sömuleiðis þakkar aðgerðastjórn bæjarbúum fyrir góða þátttöku og hafa allir sem einn lagt sitt af mörkum í baráttunni við veiruna með því að gæta vel að eigin smitvörnum. Höldum því áfram!

F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.