Jól í skókassa farið af stað á nýjan leik
Mynd: KFUM&K

Jól í skókassa, verkefni KFUM og KFUK á Íslandi, sem hefur hlotið mikinn stuðning og notið mikillar velgengni undanfarin ár er aftur farið af stað þrátt fyrir aðstæður í þjóðfélaginu. Verkefnið snýst um að setja litlar og einfaldar gjafir í skókassa sem síðan eru sendir til munaðarlausra og fátækra barna í Úkraínu.

Tekið er á móti kössum í Landakirkju sem og hjá Flytjanda niðri við Friðarhöfn, en Eimskip og Flytjandi eru á meðal styrktaraðila að verkefninu. Síðasti skiladagur skókassa í Vestmannaeyjum er föstudagurinn 30. október.

Mikilvægt er að fara vel eftir leiðbeiningum varðandi hvað má fara í kassana og hvernig ganga eigi frá þeim. Um þessar mundir er sérstaklega mikilvægt er að gæta að sóttvörnum við frágang kassanna. Allar upplýsingar um slíkt ásamt prentefni til merkinga er að finna á heimasíðu verkefnisins kfum.is/skokassar

Nálgast má skókassa í Axel Ó, Sölku og Flamingo

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.