Líknarkaffi með óhefðbundnu sniði
Við vinnu á Líknarkaffi

Eins og svo margir höfum við þurft að aðlaga okkar starfsemi að ástandinu í þjóðfélaginu og heiminum öllum. Eins og gefur að skilja munum við ekki geta haldið okkar árlega Líknarkaffi í ár sem okkur þykir miður. Við höfum farið þá leið að forselja kaffi til fyrirtækja í bænum og hafa viðtökur verið góðar og erum við afar þakklátar fyrir það.

Jólakortin okkar
Við munum selja jólakort í ár eins og áður en ekki verður gengið í hús. Jólakortin verða til sölu í Klettinum, Smart & í afgreiðslunni á heilsugæslunni. Einnig er hægt að hafa samband við Júlíu Elsu Friðriksdóttur í síma 690-3320.

Rafrænn basar
Basarinn okkar verður rafrænn í ár og fer hann fram í desember á nýrri facebook síðu félagsins sem við mælum með að þið kíkið á.

Með kærri kveðju
Kvenfélagið Líkn

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.