Gjaldskrá Herjólfs mun hækka frá og með 1. desember
Herjólfur á siglingu.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur náðst samkomulag milli samninganefndar Herjólfs ohf. og Vegagerðarinnar um drög að samningi um rekstur Herjólfs ohf. næstu árin. Unnið er að því að ljúka við gerð hins formlega samnings. Rekstur og fjárhagur félagsins hefur verið þungur á þessu ári og hefur covid -19 haft mikil áhrif þar á. Voru samningsaðilar sammála um mikilvægi þess að tryggja fjárhagslegt hæfi félagsins og grípa til fjölþættra aðgerða til þess að svo verði.

Í viðræðunum var eitt megin forgangsmálið að verja ferðatíðni Herjólfs og hefur það tekist. Til þess tryggja sama fjölda ferða þarf að hækka gjaldskrá Herjólfs og mun hún hækka frá og með 1. desember nk. á sama tíma og breytingar verða á ferðaáætlunum ferjunnar. Í vetur verða farnar sex ferðir daglega, en næsta sumar verða sjö ferðir farnar alla daga.

Einstaklingar með lögheimili í Vestmannaeyjum munu áfram njóta sérkjara.

Það er von stjórnar Herjólfs að Vestmannaeyingar sýni þessum aðgerðum skilning. Gripið er til þeirra til þess að stuðla að góðri þjónustu og öruggum ferðum milli lands og Eyja en jafnframt til þess að tryggja fjárhagslegt hæfi félagsins.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.