Loðnumælingar hefjast 4. janúar
Árni Friðriksson Ljósmynd: Vigfús Markússon

Áætlað er að halda til loðnumælinga 4. janúar eða eins snemma og veður leyfir. Mælingarnar verða framkvæmdar á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Ásgrími Halldórssyni SF, Aðalsteini Jónssyni SU og grænlenska skipinu Polar Amaroq. Um borð í öllum skipunum verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar við að vakta bergmálstæki og vinna úr sýnum.

Áætlað er að yfirferðasvæðið verði lítið eitt stærra en svæðið sem var farið yfir í desember og leiddi til veiðiráðgjafar upp á 22 þúsund tonn. Vonast er til að hægt verði að ná yfir svæðið út af Vestfjörðum sem var að hluta til hulið hafís í desembermælingunni.

Á áætlun er að farið verði aftur til mælinga í byrjun febrúar. Nákvæm tímasetning og umfang þess leiðangurs mun m.a. ráðast af veðri, útbreiðslu loðnu og aðstæðum til mælinga.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.