Þrettándagleði ÍBV verður með breyttu sniði þetta árið, en Grýla, Leppalúði og þeirra hyski eru komin í sjálfskipaða sóttkví og treysta sér ekki til byggða. Skotgengið lætur þetta ekkert á sig fá og til að viðhalda smitvarnir ætlar hópurinn að dreifa sér á fimm fjöll í kvöld. Sigurður Bragason talsmaður skotgengisins segir að um tímamóta sýningu verði að ræða. „Þetta verður flott sýnin sem ætti að sjást alstaðar úr bænum og því engin ástæða fyrir fólk að hópast saman. Þetta er um 50 mann hópur sem kemur að sýningunni í ár og ætlum við að dreifa okkur á fimm staði.“
Skotið verður af Klifi, Heimakletti, Eldfelli, Helgafelli og svo ofan af Hánni eins og hefð er fyrir og hefjast herlegheitin klukkan 19:00. „Ég lofa góðri skemmtun við þessar sérstöku aðstæður,“ sagði Siggi hress að lokum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.