Nýtt götukort af Vestmannaeyjum tekið í notkun
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, með kortið góða. Með henni eru Berglind Sigmarsdóttir og Íris Sif Hermannsdóttir hjá Ferðamálasamtökum Vestamannaeyja

Í gær afhendi ferðamálasamtökin í Vestmananeyjum Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra fyrsta einstak af nýju götukorti af eyjunni.

Kortið er teiknað af Ómari Smára Kristinssyni og eiginkona hans Nína Ivanova sá um umbrotið. Kortið er afar nákvæmt og eins og má sjá að þá er mikil teiknivinna á bakvið það. Hvert eitt og einasta hús er teiknað upp eftir ljósmyndum og gögnum. 

Inn á kortinu má finna alla grunnþjónustu sem í boði er og á bakhliðinni eru þau fyritæki sem eru skráð í Ferðamálasamtök Vestmanneyja, ásamt  siglingaráætlun Herjólfs og yfirlitsmynd af Vestmannayjum. Einnig eru þrjár gönguleiðir merktar inn á.

Hægt er að prenta út kortið í háum upplausnum og filma það á veggi eða glugga. En kortið býður uppá marga möguleika, t.d að búa til póstkort, plaggöt og aðra minjagripi. 

Ferðamálasamtök Vestmanneyja hafa séð ferlið á kortinu en vinnan við það hefur tekið eitt og hálft ár. Um er að ræða virkilega fallegt kort sem við erum ákaflega stolt af. Hægt verður að nálgast kortið rafrænt með qr kóða inná heimasíðu ferðamálasamtakanna visitvestmannaeyjar.is 

 

Nýjustu fréttir

„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.