Færeysk skytta til ÍBV
Handknattleiksdeild ÍBV og Dánjal Ragnarsson hafa komist að samkomulagi og hefur Dánjal skrifað undir 3 ára samning við félagið. Hann kemur því til félagsins í sumar og leikur með liðinu í Olís-deildinni á næsta tímabili. Dánjal er fæddur árið 2001, er rétthent skytta og 194 cm á hæð. Hann kemur frá Færeyjum og er fæddur og uppalinn í Þórshöfn. Hann hefur leikið með Neistin þar í landi allt frá 6 ára aldri. Í byrjun yfirstandandi tímabils færði hann sig um set og lék með U-19 ára liði Skanderborg í Danmörku, en vegna vandræða í kringum Covid-19 að þá er hann kominn aftur til baka í uppeldisfélagið.
Hjá Neistin leikur Dánjal undir stjórn Arnars Gunnarssonar í færeysku deildinni, en Adda Gunn ættu flestir handknattleiksáhugamenn að kannast við. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ÍBV fær til sín lærisvein Arnars, en Kristján Örn Kristjánsson (Donni) kom á sínum tíma frá Fjölni sem Arnar þjálfaði, og er því óhætt að segja að við höfum góða reynslu af leikmönnum sem koma til félagsins í gegnum Adda, segir í tilkynningu frá ÍBV.
Dánjal hefur leikið með öllum yngri landsliðum Færeyja (U15, U16, U18 og U20) og er lið hans Neistin nú á leiðinni í undanúrslit um Færeyjameistaratitilinn.

Nýjustu fréttir

Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Líf og fjör á barnamenningarháíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.