Verkinu gæti verið lokið mánaðarmótin maí/júní

Staða framkvæmda og úthlutun á þjónustuíbúðum fatlaðs fólks við Strandvegi 26 var til umræðu á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í vikunni. Vestmannaeyjabær hefur úthlutað öllum sjö þjónustuíbúðunum til þjónustuþega sem allir uppfylla skilyrði til úthlutunar. Mikil tilhlökkun er að flytja inn sem og að taka í gagnið nýjan þjónustukjarna sem á að nýtast m.a. íbúum í umræddum þjónustuíbúðum. Beðið er því með óþreyju eftir því að framkvæmdaraðilar ljúki verkinu og hægt verði að flytja inn.

Ólafur Þór Snorrason framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir framgangi verksins og mat hans á hugsanlegum verklokum. Að hans sögn gengur framkvæmdin ágætlega. Unnið er að raflögnum og málun og eftir páska verður byrjað að setja upp innréttingar. Áhersla sé á að öllum yrtri framkvæmdum sé lokið og húsnæðið allt hafi öryggisvottun áður en flutt sé inn. Ólafur segir að svo framarlega sem ekkert óvænt komi upp gæti verkinu verið lokið mánaðarmótin maí/júní.

Ráðið þakkaði Ólafi fyrir upplýsingarnar og tekur undir tilhlökkun væntanlegra íbúa í nýju þjónustuíbúðunum. Ráðið hvetur framkvæmdaaðila að hraða framkvæmdum þannig að tímasetningar standi varðandi það að flytja inn í nýjar þjónustuíbúðir sem og nýjan þjónustukjarna.

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.