Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við hinn færeyska Janus Dam Djurhuus til tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér rétt í þessu. Janus kemur til ÍBV frá uppeldisfélagi sínu H71 í Færeyjum. H71 varð á nýloknu tímabili þar í landi bæði bikarmeistari og Færeyjarmeistari og spilaði hann þar lykilhlutverk.
Janus er tæknilega góður vinstri hornamaður, er fæddur árið 2002 og er hluti af flottum árgangi hjá H71 og færeyska U20 ára landsliðinu. Hann verður í hópnum hjá U20 ára liði Færeyja sem leikur á EM í Porto í Portúgal í sumar.
Aðspurður segist Janus mjög spenntur fyrir því að koma til liðs við ÍBV en hann var meðal áhorfenda þegar liðið sigraði Stjörnuna glæsilega í gær. Hann telur að þessi félagaskipi séu gott skref í hans ferli og geti hjálpað honum að þróast sem handboltamaður.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.