Breyttur tími - Framtíðarþing um farsæl efri ár
Eldheimar

Framtíðarþing um farsæl efri ár í Vestmannaeyjum verður haldið í dag miðvikudaginn 7.september  í Eldheimum kl. 18:30.  Athugið að þetta er hálftíma seinna en upphaflega var auglýst. Við viljum gefa sem flestum tækifæri til mæta líka á glæsilega opnunarhátíð Mateyjar sem fer fram í Safnahúsinu í dag kl. 17.00 – 18:30 og koma síðan beint í Eldheima.

Íris Róbertsdóttir mun opna framtíðarþingið um farsæl efri ár í Eyjum, Thelma Rós Tómasdóttir verkefnastjóri í öldrunarþjónustu hjá Vestmannaeyjabæ og Sólrún Gunnarsdóttir félagsráðgjafi hjá Aldur er bara tala munu vera með erindi og kynna fyrirkomulagið. Síðan fara fram umræður á borðum sem stýrt er af borðstjórum. Veitingar verða í boði.

Við hvetjum sem flesta til að mæta, æskilegt er að skrá sig á netfangið thelma@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2017

Starfshópur um framtíðarsýn í öldrunarþjónustu

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.