Abel Dhaira látinn
Abel Dhaira, markamaður ÍBV er látinn 28 ára að aldri, eftir stutta baráttu við krabbamein. Abel greindist með krabbamein í ristli undir lok síðasta árs og hefur barist hetjulega síðan.
Abel lék 13 leiki með ÍBV í fyrra í deild og bikar en veiktist þegar hann var í fríi í heimalandi sínu eftir tímabilið. Abel sem er frá �?ganda kom hingað til lands í byrjun árs eftir að hafa greinst með krabbamein í lok síðasta árs.
Eftir að veikindin komu í ljós ákvað ÍBV að koma Abel til Íslands og undir læknishendur hér á landi. ÍBV setti af stað fjársöfnun til styrktar Abel og er óhætt að segja að íslenska knattspyrnusamfélagið hafi staðið við bakið á Abel en fjölmörg lið létu sektarsjóð sinn renna til Abel svo fátt eitt sé nefnt. Abel lék 72 leiki með ÍBV í deild og bikar á árunum 2011-2015 en hann lék einnig 11 A-landsleiki fyrir �?ganda.
Við hjá Eyjafréttum sendum innilegar samúðakveðjur til aðstandenda og vina Abels.
Fotbolti.net greinir frá

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.