Að auglýsingasala RÚV verði stafræn
auglysingar_3

Menningar- og viðskiptaráðuneytið birti í gær skýrslu starfshóps um málefni Ríkisútvarpsins.

Markmið með skipan hópsins var annars vegar að skoða mögulegar leiðir og tillögur til að breyta eðli og umfangi auglýsingadeildar RÚV til að minnka umsvif ríkisfjölmiðilsins á auglýsingamarkaði og hins vegar að skoða möguleika á að létta lífeyrisskuldbindingum RÚV við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR).

Í skýrslunni eru útlistaðar þrjár leiðir en sú þriðja er talin ákjósanlegust og hefur verið kynnt í ríkisstjórn Íslands. Leið þrjú, svokölluð stafræn leið, gerir ráð fyrir að hefðbundin sala og markaðssetning á auglýsingum hjá Ríkisútvarpinu verði óheimil en auglýsingahólf séu þess í stað seld á vefnum. Meðal viðbótarákvæða er að vefpantanir séu án aðkomu sölufólks og öll þjónustulaun verði afnumin. Aðrar tillögur í leið þrjú snúa að fastri verðskrá og afnám afslátta, fríbirtinga, blokkasölu, skjáauglýsinga og kostanna.

Skipaður verður vinnuhópur um útfærslu stafrænnar leiðar sem skila skal tillögum, ásamt verk- og tímaáætlun, eigi síðar en 31. maí 2024.

Aðgerð þessi er í samræmi við þjónustusamning sem ráðherra og útvarpsstjóri undirrituðu í janúar og kalla eftir að umsvif RÚV á auglýsingamarkaði verði minnkuð, segir í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Ráðast í aðgerðir í þágu öflugri fjölmiðla

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.