Aðgerðir BHM trufla talsvert starfsemi HSU í Vestmannaeyjum
Ljóst er að verkfallsaðgerðir félaga í BHM trufla talsvert starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum. Aðgerðirnar hófust á þriðjudaginn, 7. apríl. Neyðartilfellum er þó sinnt.
Mest er röskunin á störf geislafræðinga sem hafa frá 7. apríl verið í ótímabundnu verkfalli allan daginn. Á rannsóknarstofunni er einn starfsmaður í Félagi lífeindafræðinga og annar í Félagi náttúrufræðinga. Fyrrnefnda félagið hefur verið í ótímabundnu verkfalli milli kl. 8.00 og 12.00 frá 7. apríl. Félagsmenn í Félagi náttúrufræðinga, annarstaðar en á Landspítalanum og Matvælastofnun eru í verkfalli frá 12.00 til 16.00. Minni truflun er því á rannsóknum í Eyjum en ella og suma daga eru blóðprufutökur á morgnana eins og venjulega. Seinkanir gætu orðið á úrvinnslu sýna. Hvað ljósmæður varðar þá er verkfall hjá þeim eftir hádegi. Aðgerðirnar hafa engin áhrif á starf sjúkraþjálfara sem ekki eru ríkisstarfsmenn.
Stofnunin vill koma á framfæri að í öllum tilfellum er vaktþjónusta fyrir neyðartilfelli til staðar. �?etta er staðan samkvæmt boðuðum aðgerðum en verði frekari aðgerðir boðaðar af BHM má búast við víðtækari aðgerðum og víðtækari áhrifum.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.