�?fingaferð meistaraflokks karla í fótbolta | Dagur 1
Strákarnir í meistaraflokki karla héldu í gær út til Spánar þar sem liðið mun dvelja á Hotel Campoamor. Fyrsta æfingin er nú þegar búin en fór hún fram í dag. Eitt afmælisbarn er í ferðinni en hann Felix �?rn Friðriksson fagnar sínum 17 afmælisdegi um þessar mundir, hann er einnig yngsti leikmaðurinn í ferðinni. Liðið kemur heim á þriðjudaginn.
Hér fyrir neðan má sjá pistil sem Ingi Sigurðsson setti á stuðningsmannaspjall Eyjamanna á Facebook. Fyrir áhugasama geta þeir addað strákunum á Snapchat en aðgangur þeirra ber nafnið ibvfc.
Dagurinn hófst með því að mæting var á Hótel Velli kl. 04.30 og haldið til Keflavíkur.
Flugið frá Keflavík tafðist um 1,5 klst. vegna bilunar í vélinni sem átti að flytja okkur. Ferðalagið gekk í heildina vel, með millilendingu í Amsterdam, þar sem Mees bættist við hópinn. Hann er allur að koma til eftir liðþófaaðgerð í janúar og þarf núna að vinna í leikforminu.
Við komum svo á Campoamor kl. 21.30 að staðartíma, og tekinn léttur liðsfundur kl. 22.00 og línurnar lagðar fyrir næstu daga.
Á morgun (í dag) miðvikudag eru tvær æfingar og svo er æfing og leikur á fimmtudag gegn spænsku liði.
Hanni harði tók að sér að taka myndir sem væri hægt að hengja hér við innslögin. Hann mætti með Polarid-myndavélina og tók myndir í gríð og erg, hellingur af framkölluðum myndum. �?ið sem þekkið til vitið að Polaridmyndir duga ekki fyrir fésbókina og því hefur Hanni harði verið settur af sem ljósmyndari ferðarinnar.
Leikmenn ætla svo að vera virkir á ÍBV-snappinu og fylgist einnig með þar.
Annars bestu kveðju heim.
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar,
kv., Ingi Sig.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.