Afgangur af rekstri Vestmannaeyja
Rekstrarniðurstaða Vestmannaeyjabæjar samkvæmt ársreikningi hans var jákvæð um 389 milljónir króna, en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 197 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 4.3 milljörðum króna samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 3,2 milljörðum króna.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2015 nam 6,3 milljörðum króna samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta var jákvætt um 4,7 milljarða króna. Eigið fé og skuldir samtals námu þá tæpum 11 milljörðum króna í lok árs 2015. Álagningarhlutfall útsvars var 13,98% en lögbundið hámark þess er 14,52%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,42% en lögbundið hámark þess er 0,5%, í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,55% en lögbundið hámark þess er 1,65% með álagi.
Viðskiptablaðið greindi frá.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.