Áfram fríar rútuferðir
Boðið verður upp á rútuferð í leik 4 í einvígi ÍBV og Hauka í undanúrslitum Olísdeildar kvenna. Með sigri geta stelpurnar okkar tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu.
Ísfélagið og Herjólfur bjóða þér frítt far! Ísfélagið býður stuðningsmönnum fría rútuferð og Herjólfur miða í ferjuna fyrir þá sem ferðast með rútunni. Við þökkum þeim kærlega fyrir þetta óeigingjarna framtak.
Leikurinn er á laugardaginn, 6.maí, kl.15:00 á Ásvöllum í Hafnarfriði.
Planið er eftirfarandi:
Herjólfur kl.09:30 frá Eyjum (frítt í Herjólf fyrir þá sem fara með rútunni)
Farið á Ölhúsið í Hafnarfirði í stutta upphitun og svo á Ásvelli á leikinn, sem hefst kl.15:00. Þar myndum við alvöru Eyjastemningu og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs!
Herjólfur frá Landeyjum kl.20:45
ATH, börn fædd 2008 og síðar þurfa að vera í fylgd með forráða-/ábyrgðarmanni!
Vinsamlegst fyllið út eftirfarandi form til að skrá ykkur í rútuferðina. Síðasti séns til að skrá sig er kl.22:00 í kvöld, föstudaginn 5.maí.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.