„Alger ófögnuður”
Bergur Gamur 1 Sept 2024 AR
Ljósmynd: svn.is/Friðrik Sigmarsson

Í fyrrinótt þegar ísfisktogarinn Bergur VE var á landleið til Vestmannaeyja af Austfjarðamiðum var ákveðið að taka lokahol túrsins á Pétursey. Þegar trollið var síðan tekið upp kom í ljós að því fylgdu hliðar úr gámi sem augljóslega var kominn frá Eimskip.

Greint var frá þessu í fjölmiðlum í gær: Fengu gám í trollið – Eyjafréttir (eyjafrettir.is)

Rætt er við Jón Valgeirsson skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar um þetta í dag. Þar er hann spurður hvort þetta hefði ekki verið óvæntur afli?

„Nei, það er varla hægt að segja það. Það eru gámar víða á hafsbotni og ætti ekki að koma neinum á óvart miðað við hvernig skipin sem flytja þá eru hlaðin. Fyrir okkur eru þessir gámar auðvitað alger ófögnuður. Þetta var stærsti hlutinn af hliðum gámsins sem kom upp með trollinu en við vorum heppnir að því leyti að veiðarfærið virðist ekki hafa skemmst við þetta. Í vor voru fréttir af því að skip hefði misst eina 15 gáma í sjóinn úti fyrir suðurströndinni og voru einhverjir að giska á að þessi gámur væri einn af þeim. Það getur hins vegar ekki verið því skipið missti gámana á Síðugrunni sem er 30 mílum austar en sá staður sem við fengum gámaleifarnar á. Við komum að sjálfsögðu með þetta drasl í land og þar verður því fargað. Ég hef spurnir um að skip hafi lent í gámi á þessum slóðum áður og það gæti hafa verið sami gámurinn,”

segir Jón. Fleiri myndir má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.