Allt að verða klárt fyrir Blúsbræður í Landakirkju
�?að er allt að verða klárt í Landakirkju fyrir “Blues brothers”messu annað kvöld kl. 20.00. Í dag hafa staðið yfir stífar æfingar og má fá smjörþefinn af því sem í boði verður í myndbandinu hér að ofan.
En annað kvöld kl. 20:00 fagnar Landakirkja �?skulýðsdegi �?jóðkirkjunnar og mun því blása til tónlistarmessu í tilefni af því. Í þetta skiptið ætla Messuguttarnir, þeir Gísli Stefánsson, Birgir Nielsen, Kristinn Jónsson, Sæþór Vídó og Páll Viðar Kristinsson ásamt Pípulögnunum, þeim Matthíasi Harðarsyni, Guðlaugi �?lafssyni, �?lafi Ágústi Guðlaugssyni, Einari Hallgrími Jakobssyni og Jarli Sigurgeirssyni, að flytja fyrir okkur lög runnin undan rifjum The Blues Brothers. Margir kannast einmitt við kvikmyndina um þá bræður sem kom út árið 1980 og vakti mikla hylli.. Börn og unglingar í æskulýðsstafinu munu lesa ritningarlestra og bænir. Prestur verður sr. Guðmundur �?rn Jónsson en í tilefni að æskulýðsdeginum mun Gísli Stefánsson æskulýðsfulltrúi predika. Að sjalfssögðu er ekki krafist neins aðgangseyris utan kærleika og gleði, frekar en í öðrum messuathöfnum.

Engin messa verður því á hinum hefðbundna messutíma kl. 14.00 en barnaguðsþjónustan verður að sjálfsögðu á sínum stað kl. 11.00 og mun hljómsveit kvöldsins einnig taka þátt í henni.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.