Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti

Almennar samkomutakmarkanir verða 10 manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar. Reglugerð um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands gilda frá og með laugardeginum 15. janúar til og með 2. febrúar næstkomandi.

Gripið er til hertra ráðstafana með hliðsjón af fyrirliggjandi spám um fjölgun smita af völdum Covid-19  og sjúkrahússinnlögnum á næstu vikum og mikils og vaxandi álags á heilbrigðiskerfisins, sérstaklega á Landspítala. Samhliða er markvisst unnið að því að styrkja Landspítala og auka getu hans til að mæta miklu álagi.

Megininntak reglna um samkomutakmarkanir með þeim breytingum sem verða á miðnætti

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 10 manns.
  • Áfram 2 metra nálægðarmörk og óbreyttar reglur um grímuskyldu.
  • Áfram 20 manns að hámarki í rými á veitingastöðum og óbreyttur opnunartími.
  • Sviðslistir heimilar með allt að 50 áhorfendum í hólfi.
  • Heimild til aukins fjölda með hraðprófum fellur brott.
  • Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði áfram með 50% afköst.
  • Íþróttakeppnir áfram heimilar með 50 þátttakendum en án áhorfenda.
  • Hámarksfjöldi í verslunum fari úr 500 í 200 manns.
  • Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum verður lokað.

Reglugerð um breytingarnar

Minnisblað sóttvarnalæknis

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.