Alvaran – 60mínus og fleira
Eyþór Harðarson

Ég sækist eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í komandi prófkjöri þann 26.mars í Eyjum, þar sem ég tel að kraftar mínir nýtist til að leiða samstilltan hóp fólks til góðra verka fyrir samfélagið.

Ég legg áherslu á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem öflug fjármálastjórn og forgangsröðun skapar tækifæri til að veita okkur íbúum betri þjónustu til framtíðar.

Sveitarfélög þurfa að vera undirbúin fyrir fjölgun eldri borgara og mæta búsetuþörf þeirra. Ég sé fyrir mér byggðarkjarna í nálægð við miðbæinn sem gæti heitið “60mínus”, en það væri skírskotun í íbúðarkjarna þar sem allar íbúðir væru minni en 60m2 og hugsað fyrir fólk sem væri “60plús” í aldri og hefði áhuga á að halda heimili í smærra sniði en áður. Svona lausn myndi um leið skapa tækifæri fyrir ungar fjölskyldur að kaupa þær eignir sem myndu losna við þessa framkvæmd. Bæjarfélagið getur haft forgöngu í svona verkefni og verið leiðandi í að koma því á koppinn. Það felst þá aðallega í skipulagsbreytingum og jafnvel uppkaupum á eignum sem þyrfti að fara í svo verkefnið fengi framgang.

Í Eyjum hefur sjávarútvegurinn verið svo til eina undirstaðan í atvinnusköpun og gjaldeyrisöflun.Það hefur breyst með tilkomu betri samgangna. Með uppbyggingu ferðaþjónustunnar felast mikil sóknarfæri samfélagsins til hagsældar og jákvæðrar byggðaþróunar. Langtímastefnumótun í ferðaþjónustu er mikilvæg með fyrirtækjum í ferðaþjónustu og Vestmannaeyjabæ sem er stór aðili ferðaþjónustunnar með rekstri Herjólfs ohf og Eldheima til dæmis. Huga þarf að umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum þolmörkum. Nauðsynlegt er að uppbygging innviða sé í takt við vöxt greinarinnar.

Öflugt íþróttastarf hefur einkennt okkar samfélag í langan tíma og hefur bæjarfélagið stutt við það myndarlega. Styðja þarf við íþróttir á öllum stigum og iðkendur þurfa hvatningu og stuðning til þátttöku enda hefur íþróttastarf mikið forvarnargildi. Við þurfum að meta vandlega fjárfestingakostina sem eru í betri aðstöðu til íþróttaiðkana og um leið skólastarfi.

Ekki má gefast upp við kröfuna um öflugan rekstur HSU í Eyjum  þannig að hægt sé að veita sem flestum nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar með talið fæðingarþjónustu.

Mikilvægt að bætt verði úr afhendingaröryggi á raforku til Eyja. Mikilvægt að koma öðrum sæstreng á framkvæmdaáætlun. Að auki þarf umbætur á flutningsneti uppá landi sem snýr að Eyjum. Bæta þarf stöðu varaafls í Eyjum í samstarfi við stærstu notendur rafmagns. Vatnslögnin til Eyja er komin til ára sinna og þörf á að bæta við lögn til að tryggja vatnsöflun til framtíðar sem getur örugglega sinnt atvinnulífi og grunnþörfum.

Eyþór Harðarson

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.