Alzheimerskaffi í Kviku klukkan 3 á laugardaginn
Fyrsta Alzheimerskaffi Eyjamanna verður haldið í Kviku �?? félagsheimilinu við Heiðarveg á 3. hæð kl.15.00 á laugardaginn. �?ar munu Guðmunda Steingrímsdóttir og Pálína Skjaldardóttir kynna hugsunina að baki Alzheimerskaffinu sem er hugsað sem skemmtun, fræðsla og samvera. Aðgangseyrir er 500 kr. og eru allir hjartanlega velkomnir.
�?að er Alzheimer �?? stuðningsfélag Vestmannaeyjum sem stendur fyrir Kaffinu og er tilgangurinn að opna umræðu um vandamál fólks með heilabilun, gera það sýnilegt í samfélaginu og hvetja til umræðu og fræðslu. Uppræta fordóma, koma saman og eiga gæða- og gleðistundir.
�?að voru Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði, Eyjakona og fyrrum bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, Kolbrún Sigurpálsdóttir sjúkraliði og Pálína Hrönn Skjaldardóttir hjúkrunarfræðingur sem fóru af stað með Alzheimerkaffið í Reykjavík. �?ær hafa allar margra ára reynslu í ummönnun fólks með heilabilun.
Fyrsta Alzheimerskaffið var í janúar 2013 og var tveggja ára tilraunaverkefni. Alzheimerskaffi hefur hlotið góðar undirtektir og stuðning og var meðal annars tilnefnt til samfélgsverðlauna Fréttablaðsins 2013. Í dag reka Guðmunda og Pálína Alzheimerskaffi í sjálboðavinnu og koma margir aðrir að þeirri vinnu.
Alzheimer kaffi er að Hollenskri fyrirmynd og ætluð fólki með Alzheimer og skylda sjúkdóma, aðstandendur, vinum þeirra og áhugafólki. Tilgangurinn er að opna umræðu um vandamáls fólks með heilabilun, gera þá sýnilega í samfélaginu og hvetja til umræðu og fræðslu. Uppræta fordóma. Koma saman og eiga gæða og gleði stundir.
Alzheimer kaffi er rekið í samstarfi við FAAS og Félagsmiðstöðina í Hæðargerði.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.