Stefán lék vel á stigamótinu í Eyjum

Stefán Már Stefánsson úr GR lék best allra á fyrsta hringum á Kaupþingsmótaröðinni í Vestmannaeyjum í dag. Hann lék á 68 höggum eða 2 höggum undir pari vallar en Sigurþór Jónson úr GK og Sigurður Pétursson úr GR léku á pari vallar eða 70 höggum. Stefán var í 18. sæti stigalistans á Kaupþingsmótaröðinni fyrir mótið […]
Hvenær kemur að okkur ?????

Með þessu húsi er hafin uppbygging heilsu-, íþrótta- og fræðaseturs í Kópavogi í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Knattspyrnu Akademíu Íslands. Húsið er einkar glæsilegt og mun nýtast knattspyrnumönnum sem og knattspyrnuáhugamönnum vel í framtíðinni og verður aðstaða fyrir allt að 2000 áhorfendur í höllinni. Aðrar helstu upplýsingar: Stærð hússins 10.998 m2 ásamt 3.459 m2 […]
Nýr ritstjóri Vaktarinnar

Júlíus Ingason hefur verið ráðinn ritstjóri Vaktarinnar til næstu áramóta, í stað Jóhanns Inga Árnasonar sem haldið hefur til Bandaríkjanna í nám. Áfram mun Vaktin vera í sama broti og verið hefur. Með nýjum ritstjóra munu koma aðrar áherslur í blaðinu og hann mun setja sitt mark á það. Þá verður útgáfudegi blaðsins breytt, úr […]
Dýrt að pissa í Reykjavík
Alls voru tuttugu og tveir einstaklingar sektaðir fyrir að kasta af sér hlandi á almannafæri í miðborginni í nótt. Mennirnir voru allir færðir á lögreglustöð og gert að greiða sekt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu allir undir sátt í málinu nema tveir. Þeir voru of ölvaðir og fengu að sofa úr sér í […]
300 tonn, takk fyrir !!

Það bjóst enginn við að það væri þetta magn í pokanum því við vorum búnir að sjá svo illa á aflanemana og það rétt kornaði í gatinu á höfuðlínustykkinu. En það kom annað á daginn heil 300 tonn. Við dældum 200 tonnum í okkur og restin, eða 100 tonn fóru yfir í Hákon EA. Síldin […]
Nýju skipi �?órðar og Ingigerðar gefið nafn

Nýju skipi Þórðar Rafns Sigurðssonar og Ingigerðar Eymundsdóttur var gefið nafn gær í pólsku skipasmíðastöðinni sem byggir skipið.. Og það var Ingigerður sem braut kampavínsflöskuna á byrðingi skipsins og gaf því nafnið Dala-Rafn VE. (meira…)
Hemmi og Gunnar Heiðar í byrjunarlið Íslands í kvöld.

Í kvöld eigast við á Laugardalsvelli Ísland – Spánn og er landsleikurinn liður í undankeppni EM 2008 í Sviss og Austurríki. Hermann er fyrirliði í kvöld og leikjahæsti landsliðsmaðurinn í hópnum með 71 landsleik og þegar tölfræði landsliðsins er skoðuð er Hermann næst markahæsti leikmaðurinn í hópnum á eftir Eiði Smára. www.eyjar.net fann til nokkur skemmtileg […]
Margrét Lára og Olga á skotskónum

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði öll þrjú mörk Vals sem sigraði Fylki, 3:0, í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu á Valbjarnarvelli í kvöld. Olga Færseth bætti um betur því hún skoraði fjögur mörk fyrir KR sem vann ÍR, 8:0, í Breiðholtinu á sama tíma. Þór/KA lagði Stjörnuna í Garðabæ, 2:1, og Keflavík og Fjölnir skildu jöfn, 1:1. […]
Hermann fyrirliði gegn Spánverjum

Hermann Hreiðarsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum gegn Spánverjum annað kvöld þar sem er ljóst er að Eiður Smári Guðjohnsen hefur leikinn á varamannabekknum. Hermann leikur á morgun sinn 72. landsleik og þetta verður sjötti landsleikurinn sem hann ber fyrirliðabandið. (meira…)
Suðurey VE 12 skal hún heita

Um síðustu mánaðamót tók Ísfélag Vestmannaeyja við rekstri á Þórunni Sveinsdóttur VE 401, en félagið gekk frá kaupum á skipinu fyrr á þessu ári. Skipið er nú í slipp í Reykjavík þar sem fram fer ýmiskonar skvering á því, auk þess sem það hefur verið málað í Ísfélagslitunum. Framvegis ber skipið nafnið Suðurey VE 12. […]
Milljónir króna tapast á meðan ný skipalyfta er ekki komin í gagnið

Í slippnum í Reykjavík má sjá hvar Kap VE og Þórunn Sveinsdóttir VE eru í lagfæringu og er það Slippurinn í Reykjavík sem sér um verkið.Kap VE er of stórt skip fyrir gömlu skipalyftuna en verkið sem unnið er á Þórunni Sveinsdóttur hefði Skipalyftan í eyjum getað tekið að sér.Í samtali við Stefán Jónsson verkstjóra […]
æða hjá Árborg

er ástandið komið í eðlilegt horf. Ég er með góðan hóp starfsmanna og með námskeiði í mannlegum samskiptum viljum við byggja hópinn enn betur upp (meira…)
Heimaey ehf opnaði í dag

Guðjón Hjörleifsson, fyrrverandi bæjarstjóri og alþingismaður, opnaði í dag nýtt fyrirtæki, Heimaey ehf – þjónustuver við Strandveg. Fyrirtækið er með umboð fyrir tryggingafélagið Vörð og mun einnig sinna fasteigna- og skipasölu. Guðjón og Rósa Guðjónsdóttir, eiginkona hans voru að taka á móti gestum þegar blaðamann bar að. (meira…)
Bjartir tímar framundan í Eyjum

Guðjón Hjörleifsson fyrrverandi bæjarstjóri og alþingismaður opnaði í morgun fyrirtækið Heimaey ehf þjónustuver að Bárustíg 1. Guðjón sem er löggiltur fasteigna- og skipasali að mennt mun vera með fasteigna- og skipasölu ásamt því að hann mun vera með umboð fyrir Vörð tryggingafélag. Eyjar.net tóku púlsinn á Gaua bæjó. “Ég hef verið í áhættustarfi frá árinu […]
Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja hefur keppni í dag

Í dag hefst Norðurlandamót grunnskólasveita í skák en mótið er haldið í Örsundsbro í Svíþjóð. Grunnskóli Vestmannaeyja sendir eina sveit í mótið og hana skipa þeir Nökkvi Sverrisson á fyrsta borði, Alexander Gautason á öðru borði, Sindri Freyr Guðjónsson á þriðja borði, Hallgrímur Júlíusson á fjórða borði og varamaður er Kristófer Gautason. Mótið stendur fram […]
Grunnskóli Vestmannaeyja á Norðurlandamóti í skák

Í dag hefst Norðurlandamót grunnskólasveita í skák í Örsundsbro í Svíþjóð.Fulltrúar Íslands eru Grunnskóli Vestmannaeyja og er sveitin þannig skipuð: 1. borð Nökkvi Sverrisson2. borð Alexander Gautason3. borð Sindri Freyr Guðjónsson4. borð Hallgrímur Júlíussonvaram. Kristófer Gautason Á meðan á mótinu stendur mun Karl Gauti blogga og koma með fréttir eins fljótt og hægt er, á […]
Árni M. Mathiesen situr fyrir svörum
www.eyjar.net ætla að gefa lesendum sínum kost á því í vetur að senda inn spurningar í gegnum www.eyjar.net/spjall á kjörna stjórnmálamenn kjördæmisins. Fyrstur til að sitja fyrir svörum er Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Til að senda inn spurningu verður að skrá sig inn á spjallborð www.eyjar.net/spjall og hægt er að senda inn spurningu í flokknum Pólitík – Spurðu ráðherrann […]
Skuldir og skuldbindingar Vestmannaeyjabæjar eru rúmlega 4.1 milljarður

Á minnisblaði sem Elliði bæjarstjóri lagði fram um skuldastöðu Vestmannaeyjabæjar á bæjarráðsfundi í gær kemur fram að skuldir og skuldbindingar bæjarins eru rúmlega 4.1 milljarðar. Nýverið var hlutafé Vestmannaeyjabæjar selt í Hitaveitu Suðurnesja og fékkst fyrir það 3.6 milljarðar. Miðað við þessa skuldastöðu Vestmannaeyjabæjar eiga kjörnir bæjarfulltrúar erfitt verk fyrir höndum að fara með þá fjármuni á […]
Enn er von eftir góðan útisigur

ÍBV er nú aðeins fjórum stigum á eftir Fjölni eftir leiki kvöldsins í 1. deild en ÍBV lagði Njarðvík að velli 1:3 á útivelli. Reyndar á Fjölnir leik til góða gegn Grindavík á útivelli og verður sá leikur leikinn 18. september næstkomandi. Sigur ÍBV var mjög sannfærandi og hefði í raun átt að vera stærri […]
Lundaveiðitímabilið í sumar (seinni hluti)

Það er ánægjulegt að koma niður að höfn þessa dagana, enda mikið af lundapysju í höfninni. Þetta eru skýr skilaboð, um að ég hafi haft rétt fyrir mér um að lundavarpið yrði í ágætu meðallagi í sumar. Í gær lenti ég á spjalli við vin minn, Ingvar Sigurðsson, forstöðumann Náttúrufræðistofu Suðurlands, og var hann frekar […]