Meira en fimmfalt fleiri hafa sótt um fjárhagsaðstoð í Árborg en Eyjum

„Fjöldi þeirra sem sækja um fjárhagsaðstoð hjá Vestmannaeyjabæ hefur aukist eitthvað en langt frá því eins og þekkist á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs þegar hann var spurður út í stöðuna hér í Eyjum samanborið við önnur sveitarfélög. (meira…)
Minnsta jólahlaðborð landsins

Nú er sá árstími þegar jólahlaðborðin eru haldin á veitingastöðum bæjarins. Hlaðborðin eiga það öll sameiginlegt að vera glæsileg og borðin svigna undan kræsingunum. Í gær var haldið óvenjulegasta jólahlaðborð ársins þegar Einsi Kaldi, bauð félögum sínum upp á jólamat eftir hádegisæfingu Lunch United, og það í karlaklefa íþróttamiðstöðvarinnar. (meira…)
Jet Black Joe í Höllinni

Stórsveitin Jet Blac Joe mun spila á stórdansleik í Höllinni laugardaginn 19. desember næstkomandi. Um er að ræða risaaðventuball, prólokadansleik og „homecoming“ fyrir alla þá sem eru upp á landi í skóla en ætla að koma heim til mömmu og pabba yfir jólin. Þá er ekkert betra en að skella sér á dansleik með hinni […]
Vinnslustöðin greiðir hverjum starfsmanni 150 þúsund í auka jólabónus

Vinnslustöð Vestmannaeyja ætlar að greiða hverjum starfsmanni 150.000 krónur til viðbótar við desemberuppbót nú fyrir jólin. Þá verður jólabónusinn tvöfaldaður hjá Ísfélagi Vestmannaeyja vegna góðrar afkomu á árinu. Þessi tvö stærstu fiskvinnslufyrirtæki Vestmannaeyja munu því greiða starfsmönnum í landvinnslu um tuttugu milljónir króna aukalega fyrir þessi jól. Afkoma fyritækjanna hefur verið góð á árinu vegna […]
Er ekki komið nóg?

Margra áratuga barátta Eyjamanna hefur nú verið eyðilögð á nokkurra vikna tímabili. Fyrir nokkrum árum hófst barátta fyrir því að Herjólfur sigli tvær ferðir á dag, alla daga vikunnar. Viðbrögðin voru æði misjöfn. Ég var þá að vinna á Fréttum. Meira að segja voru hneykslunarraddir innan bæjarstjórnar á þessum kröfum. Sumir töldu þessar kröfur æði […]
Orkan komin til Eyja

Bensínsalan Orkan hefur sett upp eina bensíndælu við verslunina Tvistinn við Faxastíg, þar sem Skeljungur var áður með bensínsölu. Orkustöðin í Eyjum er 26 Orkustöðin sem opnuð er á landinu og stutt er í að sú 27 verði opnuð en sjálfsafgreiðsla er í öllum Orkustöðvum. Í dag er verðið sex til sjö krónum lægra en […]
Frábær stemmning á Jólastjörnum Hallarinnar

Í gærkvöldi var sleginn næst síðasti tónninn í stórglæsilegri dagskrá Hallarinnar á aðventu þar sem Jólastjörnur Hallarinnar sungu og léku. Þar voru mættar helstu söngstjörnur þjóðarinnar en Eyjamenn áttu sína fulltrúa sem stóðu sig með prýði. (meira…)
Slökkvilið kallað að einbýlishúsi vegna mikils reyks

Það er líklega fátt verra en að lenda í bruna og kannski sérstaklega nú rétt fyrir jólahátíðina. Vökul augu vegfarenda sáu mikinn reyk leggja frá einbýlishúsi í Vestmannaeyjum í kvöld og hringdu umsvifalaust í Neyðarlínuna. Viðbúnaðurinn var talsverður, slökkvilið og lögregla voru kölluð út en stuttu síðar var útkallið afturkallað. Ástæðan? Jú það var einungis […]
Pólitískur blóðhundur skrifar

Í opnuviðtali Frétta við Pál Scheving, oddvita minnihlutans, segist hann vera óflokksbundinn og kallar þá sem eru pólitískir „pólitíska blóðhunda“. Ekki kæmi pólitískum blóðhundi eins og mér á óvart þótt hann yrði á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar enda mærir hann íhaldið í bak og fyrir í þessu viðtali. (meira…)
Páll �?skar og Diddú sungu fyrir vistmenn Hraunbúða

Systkynin Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, komu við á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra í morgun og tóku nokkur lög við undirleik hörpuleikarans Monicu. Tilefnið er það að í kvöld munu þau, ásamt fleiri tónlistarmönnum á tónleikum í Höllinni, Jólastjörnum en bæði vistmenn og starfsfólk Hraunbúða hlýddu á. (meira…)
Tilboð óskast í farþegaaðstöðu í Land-Eyjahöfn

Fyrir tveimur vikum auglýsti Siglingastofnun Íslands eftir tilboðum í byggingu farþegaaðstöðu í Landeyjahöfn en tilboð í það verða opnuð 17. desember. Til fróðleiks má hér sjá teikningar af fyrirhuguðu húsi. Um er að ræða tveggja hæða steinsteypta byggingu með timburþaki. Neðri hæð er 186 m2 og efri hæðin er 77 m2 eða samtals 263 m2. […]
Ferðum Herjólfs ekki fækkað

Eftirfarandi frétt birtist á forsíðu Frétta 12. febrúar sl. þar sem sagt var frá opnum fundi Kristjáns L. Möller, þáverandi og núverandi samgönguráðherra í Vestmannaeyjum tveimur dögum fyrr. Þar segir m.a.: „Rekstur Herjólfs hefur verið þungur undanfarnar vikur og mánuði að því er kom fram á opnum borgarafundi með samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller á þriðjudagskvöldið. […]
�?akkir fyrir vel unnin störf

Ísfélag Vestmannaeyja greiddi starfsfólki í landi tvöfalda desemberuppbót á dögunum og vildi með því sýna þakklæti fyrir vel unnin störf á árinu. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, sagði síldveiðarnar í haust hafa breytt miklu fyrir félagið. Þær hafi verið óvænt búbót fyrir félagið og því hafi stjórn félagsins ákveðið að deila þeim ávinningi með starfsfólkinu […]
Frábær árshátíð hjá elstu bekkingum GRV

Árshátíð elstu bekkja Grunnskóla Vestmannaeyja fór fram á fimmtudag í Höllinni en árshátíðin er lokahnykkur á Smiðjudögum sem fóru fram þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Þetta var í þriðja sinn sem árshátíðin er haldin í Höllinni og á líklega hvergi annars staðar heima en krakkarnir lögðu gríðarlega mikla vinnu á sig til að gera hátíðina sem […]
Elliði skipaður í ráðgjafahóp vegna breytinga á sýslumannsembættunum

Elliði Vignisson, bæjarstjóri hefur verið skipaður í ráðgjafahóp sem vinna á að tillögum um breytingar á skipan sýslumannsembætta í landinu. Þorleifur Pálsson, fyrrverandi sýslumaður, hefur verið falið að gera tillögur um breytingar á skipan sýslumannsembættanna en hópurinn mun vera honum til ráðgjafar og stuðnings við tilllögugerðina. (meira…)
Arnar í samningahóp um sjávarútveginn

Arnar Sigurmundsson hefur verið skipaður í samningahóp um sjávarútveg, sem er einn tíu samningahópa sem munu starfa með samninganefnd Íslands um aðild að ESB. Hlutverk hópanna er að annast undirbúning viðræðnanna og verða hóparnir í ráðgjafahlutverki. (meira…)
Sjómenn vs. opinberir erindrekar

Það er ekki lítið búið að rífast um sjómannaafsláttinn undanfarið og hef ég ekki verið að skrifa um þessa umræðu hér. Ég hef ekki gefið mér tíma í slíka ritvinnslu en það er betra að sleppa því að skrifa heldur en að skrifa einhvern léleg pistil. Sitt sýnist hverjum um þennan svokallaða ,,afslátt” en þeir […]
Jólastjörnur í Höllinni á fimmtudag

Þann 10 desember, eða næstkomandi fimmtudag, verða frábærir jólatónleikar haldnir í Höllinni. Nokkrir af bestu söngvurum landsins mæta ásamt sveit Eyjamanna. Stærstu stjörnurnar eru án efa systkynin Páll Óskar og Diddú en undri spilar Monica. Þá mun Helga Möller einnig taka lagið, Litlu Lærisveinarnir undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur ásamt frábæru bandi sem þeir Biggi Niels, […]
Vinnuslys í Vinnslustöðinni

Lögregla Vestmannaeyja fékk tilkynningu um vinnuslys í Vinnslustöðinni í síðustu viku. Þar hafði maður orðið fyrir lyftara. Vinstri fótur mannsins lenti undir einu af hjólum lyftarans með þeim afleiðingum að fjórar tær á vinstri fæti mörðust. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan. (meira…)
Niðurskurður í samgöngum kominn út fyrir allt velsæmi

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist ekki sáttur við að enn sé verið að skerða samgöngur við Vestmannaeyjar ef ferðatíðni í Landeyjahöfn verði ekki eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Samfélagið í Vestmannaeyjum hafi beðið eftir tækifærum sem fylgja fjölgun ferða og þar með auknum sveigjanleika í vali á brottfarar og komutíma en í því liggja […]